Ábyrgð og þjónusta

Viðhald

Samstarf okkar við Volvo Cars þýðir víðfeðmt net þjónustustaða með tæknilega sérþekkingu sem þarf til að viðhalda, gera við og uppfæra Polestar bíla. 

Finndu næsta þjónustustað
White Polestar 4 driving in a blurry landscape

Minni þörf á þjónustu

Dæmigerð aflrás bensín- eða dísilbíls inniheldur yfir 2.000 hluti sem hreyfast, meðan rafdrifna aflrás Polestar 4 er með um 50. Af því leiðir að minni þörf er á þjónustu þar sem, í rauninni, eru dekk, rúðuþurrkublöð og loftsía farþegarýmis einu hlutirnir sem þarf að athuga reglulega.

Polestar 4 driving on race track in desert landscape

Ókeypis í þrjú ár

Jafnvel þótt rafbílar séu með færri vélræna hluta og verða þar af leiðandi fyrir minna sliti, kemur Polestar 4 með ókeypis þjónustuáætlun fyrir fyrstu þrjú árin af eignarhaldi, eða að 50.000 km, hvort sem á undan kemur. Hún heldur bílnum í besta mögulega ástandi og tryggir að ábyrgðin falli ekki úr gildi.

Meira um viðhald

Ábyrgð

Polestar bílar eru byggðir samkvæmt sömu kröfuhörðu viðmiðunum og þeir eru hannaðir. Polestar ábyrgðin endurspeglar þessa þráhyggju varðandi gæði, hún nær yfir viðgerðir eða útskiptingu á biluðum íhlutum, rafhlöðupakkanum, lakki og ryði af völdum framleiðslugalla.

Vehicle warranty 3 years

Ökutækisábyrgð

Ef einhver hluti bílsins bilar vegna framleiðslugalla verður gert við hann án endurgjalds á viðurkenndum Polestar þjónustustað (service point). Þessi ábyrgð nær yfir fyrstu þrjú árin eftir afhendingu, burtséð frá breytingum á eignarhaldi, svo framarlega sem farið hafi verið eftir þjónustuáætlun Polestar.

White 8 on black background

Rafhlöðuábyrgð

Allir gallar í virkni rafhlöðu, efni eða vinnu verða lagfærðir án endurgjalds innan 8 ára eða 160.000 km, hvort sem kemur á undan. Ef ástand rafhlöðunnar (SoH) fellur niður fyrir 70% af upphaflegri rýmd innan fyrstu 8 ára af eignarhaldi, verður skipt um rafhlöðuna án endurgjalds. 

Black 12 on light grey background

Ryðvarnarábyrgð

Ef einhversstaðar er gat á yfirbyggingunni vegnar tæringar verður gert við eða skipt út þeim þiljum sem þetta hefur áhrif á án endurgjalds af viðurkenndum Polestar þjónustustað (service point). Ryðvarnarábyrgðin nær yfir fyrstu 12 árin eftir afhendingu burtséð frá breytingum á eignarhaldi.

Over-the-air-updates shown on centre display in Polestar 4

Uppfærslur yfir netið

Alltaf uppfærður. Stöðugt er verið að þróa hugbúnað Polestar 4 til að tryggja að eiginleikar bílsins standist kröfur framtíðarinnar. Búast má við stöðugum uppfærslum á stýrikerfum, öppum og kerfum bílsins yfir líftíma ökutækisins án þess að heimsækja þurfi þjónustustað (service point).

Overhead console with roadside assistance

Polestar aðstoð

Allir nýir Polestar 4 koma með þriggja ára ókeypis vegaaðstoð. Með því að ýta á tengja-hnappinn á toppstjórnborðinu fæst aðgangur að viðurkenndri þjónustu alla daga allan sólarhringinn, þ.m.t. við endurheimt bifreiðar, útvegun annars flutningsmáta eða næturdvalarstaðar ef þarf.

Meira um Polestar aðstoð

Gagnameðhöndlun og persónuvernd

Ákveðnir eiginleikar í Polestar 4 geta krafist aðgangs að ökutækis-, staðsetningar- og öðrum persónuupplýsingum til að geyma kjörstillingar og bæta akstursupplifunina. Finna má allar upplýsingar um hvernig gögn eru notuð og þeim deilt á persónuverndarsíðum Polestar.

Meira um persónuvernd
Centre display in Polestar 4 showing the personal settings

Persónulegar upplýsingar

Polestar ID virkjar aðgang að úrvali Polestar þjónustu, sem krefst persónulegra upplýsingar til að upplifun viðskiptavinarins verði eins og best verður á kosið. Polestar ID veitir einnig notandanum heimild til að stjórna bílnum með Polestar appinu og leyfir Polestar 4 að tengja stillingar fyrir sæti, stýrisskynjun o.fl. við ákveðinn ökumann.

A white Polestar 4 shown from above. Black background and a white ring around

Ökutækis- og staðsetningargögn

Gögn sem innihalda verksmiðjunúmer ökutækis (VIN), staðsetningu ökutækis og tímastimpla eru tímabundið geymd og framkvæmd úrvinnsla á þeim vegna virkra öryggiseiginleika, öryggistengdrar þjónustu og notkunar SOS- eða tengja-hnappsins.

Google apps and services shown on the centre display in the Polestar 4

Google öpp og þjónusta

Polestar 4 kemur með Google² innbyggðu sem gerir kleift að nota Google öpp og þjónustu í bílnum. Ökumaðurinn getur breytt stillingum fyrir deilingu og persónuvernd hvenær sem er.

Meira í þjónustuskilmálum Google

Fáðu frekari upplýsingar um Polestar 4

  1. Fáanleiki sækja og afhenda þjónustu fer eftir getu og staðbundnum forgangi þjónustuaðila okkar.
  2. Google, Google Play, Google Maps og YouTube Music eru vörumerki Google LLC. Google Assistant og sumir tengdir eiginleikar eru ekki fáanlegir fyrir öll tungumál eða lönd. Sjá g.co/assistant/carlanguages varðandi fáanlegar uppfærslur fyrir tungumál og lönd. Ekki eru allar þjónustur, eiginleikar, forrit eða áskilin samhæf tæki fáanleg fyrir öll tungumál eða lönd, og geta verið mismunandi eftir gerð bifreiðar. Frekari upplýsingar má finna á hjálparsíðunni (Help Center) og á vefsíðum Google Assistant, Google Maps, Google Play eða framleiðandans.
  • Myndefni er einungis til skýringar.

Fáðu allar nýjustu fréttirnar um Polestar

Gerast áskrifandi
Polestar © 2024 Öll réttindi áskilin
LagalegtSiðareglurPersónuverndVafrakökurAðgengisyfirlýsing