5 ára ábyrgð
Nær yfir alla hluta sem bila vegna framleiðslugalla með kostnaðarlausum viðgerðum eða skiptum hjá viðurkenndum Polestar þjónustuaðila. Þessi ábyrgð gildir fyrstu 5 árin eftir afhendingu, óháð eigendaskiptum. Fyrstu 2 árin falla undir verksmiðjuábyrgð Polestar, en næstu 3 ár eru í umsjón Brimborgar, umboðsaðila Polestar á Íslandi. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg. Viðskiptavinir geta haft samband við Polestar á Íslandi til að fá nánari upplýsingar um ábyrgðarskilmála.
8 ára rafhlöðuábyrgð
Allir gallar í virkni rafhlöðu, efni eða vinnu verða lagfærðir án endurgjalds innan 8 ára eða 160.000 km, hvort sem kemur á undan. Ef ástand rafhlöðunnar (SoH) fellur niður fyrir 70% af upphaflegri rýmd innan fyrstu 8 ára af eignarhaldi, verður skipt um rafhlöðuna án endurgjalds.
12 ára ryðvarnarábyrgð
Ef einhversstaðar er gat á yfirbyggingunni vegnar tæringar verður gert við eða skipt út þeim þiljum sem þetta hefur áhrif á án endurgjalds af viðurkenndum Polestar þjónustustað (service point). Ryðvarnarábyrgðin nær yfir fyrstu 12 árin eftir afhendingu burtséð frá breytingum á eignarhaldi.